


|
Óskabörn
Óðins MC Iceland
Óskabörn
Óðins MC var stofnað þann 27.03.1988 af Steinþóri
Stefánssyni ásamt þremur félögum sínum.
Steinþór lést skyndilega daginn eftir. Hugmyndir
um virkan mótorhjólaklúbb fyrir utan Sniglana voru
litlar. Fór lítið fyrir Óskabörnum, þangað
til fjórir félagar, Raggi Minkur, Gunni Klútur,
Arnar Standby og Tösku Atli ákváðu að vekja
upp klúbbinn frá því að vera eitthvað
sem menn töluðu um, í að vera klúbbur sem
fólk tæki virkilega eftir.
Rykið var þurrkað af bakmerkjunum og þau handsaumuð
á þykk leðurvestin. Eftir blöðrur og blóðuga
fingur, sá fólk að klúbburinn var virkilega
til og að þeir sem slíkir væru að “hjóla”.
Klúbburinn óx hægt í byrjun og hefur með
tímanum vaxið enn hægar.
Óskabörn Óðins gáfu þeim sem óskuðu
góð ráð um hvernig ætti að byggja upp
góðan MC-klúbb og voru margir klúbbar stofnaðir,
en með þeim formerkjum að þeir yrðu sem fyrst
stórir og öflugir / virkir en flestir þessara klúbba
leystust upp.
Aðeins nokkrir klúbbar hafa náð að lifa af
fæðinguna og skapa sér stöðu meðal mótorhjóla
fólks á Íslandi.
Fyrsta blótið var haldið árið 1994 á
suðurlandi og fékk nafnið Freysblót en Freyr gaf
mikinn vind og vatn, ákveðið var að stóla
á Þór næst. Þórsblót árið
1995 heppnaðist mjög vel þrátt fyrir vind og vatn
og því ákváðu “ Óskabörn
Óðins” að blóta Þór framvegis,
það þótti nefnilega ljóst að það
skifti ekki máli hvern guðanna þeir blóta, vatnið
og vindurinn yrði alltaf til staðar.
Óskabörn Óðins hafa nokkur undan farin ár
haldið þorrablót í klúbbhúsi félagsins,
sem hefur ávalt verið vel sótt og engin ástæða
til að hætta því.
Meðlimir Óskabarna Óðins eru tuttugu talsins,
þar af búa tveir af meðlimunum í Danmörku
og einn í Noregi. Nokkrir af meðlimum “ Óskabarna
Óðins” eru heiðingjar og því meðlimir
Ásatrúafélagsins, þar sem menn trúa
á forna norræna guði.
Óskabörn Óðins er MC klúbbur sem leggur
áherslu á félagana.
Um helmingur félaganna eiga Harley, en það er ekki
skylda til að vera í klúbbnum því félagsskapurinn
er númer eitt en ekki hjólin. Það skemmir þó
ekki fyrir, skifti menn gamla kawanum út fyrir Harley. Óskabörnin
hafa gegnum árin verið virk innan Bifhjólasamtaka
lýðveldisins Snigla, þar sem stór hluti Óskabarna
Óðins eru eða hafa verið meðlimir af sniglunum.
Óskabörn Óðins eru með klúbbhús
í Kaplahrauni 18 Hafnafyrði, þar sem margir meðlimanna
ditta að hjólunum sínum á veturna og er allt
mótorhjólafólk velkomið að kíkja
í kaffi.
Ef þið viljið hafa samband þá erum við
að sjálfsögðu allir með að minsta kosti
einn GSM síma, svo það er engin afsökun að
segja að maður hafi ekki náð sambandi.
Óskabörn Óðins
/ Odins Ønskebørn MC
Frægir í útlöndum...sönnunargagnið
sjálft er hérna fyrir neðan!

|
|