|
100 ára afmæli mótorhjólsins.
Fréttatilkynning frá Hirti Líklegum.
4 af 8. 1. 2. 2005.
Það sem helst er í fréttum er að það
kom á óvart hversu margir fóru inn á www.team-bacardi.tk
vefsíðuna eftir síðustu fréttatilkynningu,
en þegar þetta er ritað höfðu um 800 kíkt
á þá síðu og er það mun meira
en búist var við. Það er tekið með þeim
skilaboðum að þetta leggist vel í mótorhjólamenn
Íslands.
Einnig hafa borist tvær fyrirspurnir frá erlendum mótorhjólamönnum
og var því svarað þannig að þetta sé
fyrst og fremst 100 ára afmælishátíð
mótorhjólsins á Íslandi og væri þar
af leiðandi sett upp sem fjölskylduvæn skemmtun fyrir
alla mótorhjólamenn og sé mótorhjólinu
til heiðurs.
Miðnætursólar-keyrslan fyrir götuhjól verður
að Hólum í Hjaltadal að tillögu frá
heimamönnum og geta menn sem eru hagmæltir farið að
stílfæra kvæði Guðmundar G.: Ríðum
heim til Hóla, en framhaldið gæti verið svona:
mótorhjól er klárinn minn....
Fyrir endurohjól og þá sem elska að aka á
möl á sínu götuhjóli verður farið
í hina fornu Grettirslaug.Keppnir þær er fyrirhugað
er að halda eru 5-6 og er stefnan sett á að gjald fyrir
hverja keppni verði ekki hærra en 2000 krónur, en keppi
menn í mörgum keppnum verður heildar keppnisgjald aldrei
hærra en 5000 krónur. Tvær keppnir eru ætlaðar
götuhjólum, en þrjár eru sérsniðnar
fyrir torfæruhjól.
Hér eftir fer gróf lýsing á þeim stöðum
er keppnir eru hugaðar á og grunnhugmynd af keppnisfyrirkomulagi,
en þess ber að geta að ekki hefur verið sótt
formlega um keppnirnar til sveitarstjórnar og sýslumanns
þar sem ekki er endanlega ákveðið um keppnisfyrirkomulag
og reglur.
Götuspyrna: Sótt verður um að fá að keppa
á Sauðárkróksbraut,ekið verður til
suðurs og lengd brautar 200 metrar (ekki verður klukka né
ljósaræsing notast verður við ræsingarbúnað
svipaðan og notaður er við motocross). Þrír
flokkar verða: Opinn flokkur, 25 ára hjól og 50 ára
gömul hjól.
Enduro-Rally: Þrjár sérleiðir. Einn keppandi
ræstur í einu (eins og í bílarallý).
Leið 1: Byrjar (startað við norður-endann á Sauðárkróksbraut)
hröð eftir slóða sem liggur meðfram veginum
til austurs, en svo er ekið til baka á milli sandhóla
til vesturs og endað á nánast sama stað og byrjað
var:
Leið 2.Sama leið og 1 nema öfugt. Leið 3. Byrjað
við motocrossbrautina og ekið er upp og niður brattar brekkur
og farið eftir og yfir Gönguskarðsá (hæg og
torfær leið með hröðum köflum). Heildar
vegalengd er á bilinu 20-25 km. (hægt að sjá
vel á korti í símaskrá).
Brekkuspyrna: Beint upp ca. 150 metra langa bratta (ca. 45-65 gráðu
brött brekka) brekku og er byrjað ofan í Gönguskarðsá
(við steinullarverksmiðjuna). Einn keppandi í einu. Gott
stæði fyrir áhorfendur. Sá sigrar sem lengst
kemst upp í brekkuna ( ef fleiri en einn komast upp á
topp fara þeir aftur og aftur þar til einn er eftir).
Speedway-dirt-track: Keppt verður á svæði við
hliðina á slökkvistöð Sauðárkróks
(sem er við Borgarflöt) en þarna halda heimamenn áramótabrennu
sína (hinum megin við veginn verður startið á
enduro-rallinu og upp á veginum verður götuspyrnan,
en ekkert á sama tíma). Hugmynd er um að 6 keppi í
einu 4 hringi og tveir komast áfram, en í úrslitum
verði keppt í 6 hringi.
Drulluspyrna: Ekið eftir skurði sem vatn er í og sigrar
sá er lengst kemst eftir skurðinum. Fyrst keppa götuhjól
og þar á eftir torfæruhjól. Þar sem
skurðurinn er frekar mjór getur aðeins einn keppandi
verið í honum í einu.
Enn er ekki ákveðið hvort motocrosskeppni verður,
en það mun koma í ljós síðar. Meira
síðar, en fyrri fréttatilkynningarnar er hægt
að nálgast á www.ernir.com , www.motocross.is , www.postular.com
, www.sniglar.is , www.icemoto.com og www.enduro.is en þar er
nú skráning í keppnina á Kirkjubæjarklaustri.
Nýtt efni eftir mánuð með kveðju fyrir hönd
undirbúningsaðila.
Hjörtur Líklegur.
|